Skátafélagið Mosverjar
síður
Skátafélagið
Mosverjar
SKÁTAFÉLAGIÐUm MosverjaSkýrslur og fundargerðirStjórn og foringjar
ALDURSSTIG6 ára | Hrefnuskátar7-9 ára | Drekaskátar10-12 ára | Fálkaskátar
ANNAÐ
SumarnámskeiðStikaðar gönguleiðir
Skálinn
Jólafundur Mosverja
SKRÁNING Í
MOSVERJA ︎︎︎
Skátafélagið Mosverjar
Á sumri hverju bjóða Mosverjar upp á sumarnámskeið með áherslu á ævintýri og útivist.
Dagskrá námskeiðanna er fjölbreytt og inniheldur m.a. hjólaferðir, útieldun, báta og sund.Námskeiðin eru ætluð börnum sem lokið hafa 1. -4. bekk.
Eftirfarandi vikur verða í boði:
Vika 1: 15.-19. júní - 4 dagar
Vika 2: 22.-26. júní - 5 dagar
Vika 3: 29. júní-3. júlí - 5 dagar
Vika 4: 6.-10. júlí - 5 dagar
Vika 5: 2.-7. ágúst - 4 dagar
Vika 6: 10.-14. ágúst - 5 dagar
Jólafundur 2025
Jólafundur Mosverja 10. desember 2025
Skátafélagið óskar öllum Mosverjum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári.
Takk fyrir allar góðu stundirnar á liðnu ári.
Tendraðu lítið skátaljós
láttu það lýsa þér,
láttu það efla andans eld
og allt sem göfugt er.
Þá verður litla ljósið þitt
ljómandi stjarna skær,
lýsir lýð, alla tíð
nær og fjær.
Ég sá mömmu kyssa jólasvein
við jólatréð í stofunni í gær.
Ég læddist létt á tá
til að líta
gjafir á,
hún hélt ég væri steinsofandi
Stínu dúkku hjá
Og ég sá mömmu kitla
jólasvein
og jólasveinninn út um
skeggið hlær.
Ja, sá hefði hlegið með
hann pabbi minn hefð'ann séð
mömmu kyssa jólasvein í gær.
Ég sá mömmu kyssa jóla svein
við jólatréð í stofunni í gær.
Ég læddist létt á tá til að líta
gjafir á,
hún hélt ég væri steinsofandi
Stínu dúkku hjá
Og ég sá mömmu kitla
jólasvein
og jólasveinninn út um
skeggið hlær.
Ja, sá hefði hlegið með
hann pabbi minn hefð'ann séð
mömmu kyssa jólasvein í gær.
3. Daramdam
4. Skín í rauðar skotthúfur
Skín í rauðar skotthúfur
skugga langan dag inn,
jólasveinar sækja að
sjást um allan bæinn.
Ljúf í geði leika sér
lítil börn í desember,
inn í frið' og ró,
út
í frost og
snjó
því að brátt koma björtu jólin,
bráðum koma jólin.
Uppi á lofti, inni í skáp
eru jólapakkar,
titra öll af tilhlökkun
tindilfættir krakkar.
Komi jólakötturinn
kemst hann ekki í bæinn inn,
inn' í frið og ró,
út'
í frost og
snjó,
því að brátt koma björtu jólin,
bráðum koma jólin.
Stjörnur tindra stillt og rótt,
stafa geislum björtum.
Norðurljósin loga skær
leika á himni svörtum.
Jólahátíð höldum vér
hýr og glöð í desember
þó að feyki snjó
þá í friði og ró
við höldum heilög jólin
heilög blessuð jólin.
5. Hátíð í bæ
Ljósadýrð loftin gyllir,
lítið hús yndi fyllir,
og hugurinn heimleiðis
leitar því æ,
man ég þá er hátíð var í
bæ.
Ungan dreng ljósin laða,
Litla snót geislum baða.
Ég man það svo lengi sem
lifað ég fæ
lífið þá er hátið var í bæ.
Hún fékk bók en
hann fékk nál og tvinna,
hönd í hönd þau leiddust kát og rjóð.
Sælli börn nú sjaldgjæft er að finna,
Söngur blítt svefninn hvetur,
systkin tvö ei geta' betur,
en sofnað hjá mömmu,
ég man þetta æ,
Bakpokinn
Hann ljótur er á litinn
og líka' er striginn slitinn
þó bragðast vel hver bitinn
úr bakpokanum enn.
Á mörgum fjallatindi
í miklu frosti' og vindi
hann var það augnayndi
sem elska svangir menn.
Hæ, gamli pokinn góði
nú get ég þess í ljóði
að ég var mesti sóði,
sem illa fór með þig.
Ég fól þér allt að geyma,
sem ei var eftir heima,
og ekki má því gleyma,
að aldrei sveikstu mig.
Nú gríp ég gamla malinn
og glaður held á dalinn,
því óskasteinn er falinn
við Íslands hjartarót.
Ég hlýði á lækjarniðinn
og hlusta á lóukliðinn
og finn í hjarta friðinn
við fjallsins urð og grjót.
7. Í skóginum stóð kofi
einn
Í skóginum stóð kofi einn,
sat við gluggann jólasveinn,
þá kom lítið héraskinn,
sem vildi komast inn:
”Jólasveinn ég treysti' á þig,
því veiðimaður skýtur mig.”
”Komdu litla héraskinn,
því ég er vinur þinn.”
En veiðimaður kofann fann,
og jólasveininn spurði hann:
“Hefur þú séð héraskinn
hlaupa’ um hagann þinn?”
“Hér er ekkert héraskott.
Hypja þú þig héðan brott.”
Veiðimaður burtu gekk,
og engan héra fékk.
8. Með sól í hjarta
Með sól í hjarta og söng á vörumvið setjumst niður í grænni laut.Í lágu kjarri við kveikjum eldinnog kakó hitum og eldum graut.
Enn logar sólin á Súlnatindi,og senn fer nóttin um dalsins kinn,og skuggar lengjast og skátinn þreytist,hann skríður sæll í pokann sinn.
Og skáta dreymir í værðarvoðumum varðeld, kakó og nýjan dag.Af háum hrotum þá titra tjöldin,
í takti, einmitt við þetta lag.
9. Adam átti syni sjöAdam átti syni sjö,sjö syni átti Adam.Adam elskaði alla þá,og allir elskuðu Adam.Hann sáði, hann sáði.Hann klappaði saman lófunum.Hann stappaði niður fótunum.Hann ruggaði sér í lendunum,og snéri sér í hring.
Ég vil vera hér
aðeins lengur
aðeins lengur hér með þér.
Mmm-mmm
Þett er svo notalegt
og það er undarlegt
að morgni verðum við ei hér.
Mmm-mmm
Þegar hausta fer
ég kveðju þína ber
svo hlý´og góð´í hjarta mér
Mmm-mmm
Er árin líða hjá,
við minningarnar þá
ég get þá alltaf hlýjað mér.
Mmm-mmm
Ég við vera hér,
Aðeins lengur,
Aðeins lengur hér með þér
11. Þýtur í laufi
Þýtur í laufi bálið brennur.
Blærinn hvíslar: "Sofðu rótt."
Hljóður í hafi röðull rennur,
roðnar og bíður góða nótt.
Vaka þá ennþá vinir saman
varðeldi hjá í fögrum dal.
Lífið er söngur, glaumur gaman.
Gleðin, hún býr í fjallasal.
Skýrslur og fundargerðir
Á þessari síðu má finna fundargerðir aðalfunda, ársskýrslur og lög félagsins.
Ársskýrslur
Ársskýrsla Mosverja 2021-2022 ︎︎︎
Ársskýrsla Mosverja 2019-2020 ︎︎︎
Ársskýrsla Mosverja 2018-2019 ︎︎︎
Ársskýrsla Mosverja 2017-2018 ︎︎︎
Ársskýrsla Mosverja 2016-2017 ︎︎︎
Fundargerðir aðalfundaFundargerð aðalfundar 2023 ︎︎︎
Fundargerð aðalfundar 2022 ︎︎︎
Fundargerð aðalfundar 2021 ︎︎︎
Fundargerð aðalfundar 2020 ︎︎︎
Fundargerð aðalfundar 2019 ︎︎︎
Fundargerð aðalfundar 2018 ︎︎︎
Lög skátafélagsins MosverjaLög Mosverja samþ. á aðalfundi 26.2.2023 ︎︎︎
Stjórn og foringjar
Félagsforingi
Ísak Árni Eiríksson Hjartar
isak(hjá)mosverjar.is
Aðstoðarfélagsforingi
Dagbjört Vatnsdal Brynjarsdóttir
dagga(hjá)mosverjar.is
Aðstoðarfélagsforingi
Andrea Dagbjört Vatnsdal Pálsd.
drea(hjá)mosverjar.is
Gjaldkeri
Guðbjörn Gústafsson
gjaldkeri(hjá)mosverjar.is
Stjórnarmeðlimur
Hrafnhildur Oddný Sigurgísladóttir
hrafnhildur(hjá)mosverjar.is
Stjórnarmeðlimur
Ásgerður Inga Stefánsdóttir
asgerdur.stefansdottir(hjá)gmail.com
Stjórnarmeðlimur
Kolbrún Reinholdsdóttir
kolla(hjá)efla.is
Varamaður í stjórn
Eiríkur Hjartar
eirikur(hjá)mosverjar.is
Sjálfboðaliðaforingi
Birta Ísafold Jónasdóttir
birta(hjá)mosverjar.is
Hrefnuskátar
Hrafnhildur Oddný Sigurgísladóttir
Kristófer Njálsson
hrafnhildur(hjá)mosverjar.is
Drekaskátasveitin
Drakó
Dagbjört Vatnsdal BrynjarsdóttirAðstoðarsveitarforingjar:Arnar Freyr ArnarssonBengta Kristín MethúsalemsdóttirPétur Jón ÁrnasonSædís Erla Erlendsdóttir Fjeldsted
Jón Arnar Kristínarson
dagga(hjá)mosverjar.is
Fálkaskátasveitin
Hrafnhildur Oddný Sigurgísladóttir
Unnur Elísa Sigurgísladóttir
Unnur Hróbjartsdóttir
hrafnhildur(hjá)mosverjar.is
DS. Óríon
Kristófer Njálsson
Eyvör Stella Guðmundsdóttir
Gunnlaugur Friðjónsson
RS. Rögnvaldur
Ísak Árni Eiríksson Hjartar
Óli Björn Sigurðsson
isak(hjá)mosverjar.is
Um Mosverja
Skátafélagið Mosverjar var stofnað um 1960. Um það leyti var mikill kraftur í skátastarfi á Íslandi og skátafélög mun fleiri en eru í dag.
Í sögu Mosfellsbæjar er sagt frá upphafi skátastarfs í Mosfellssveit sem þótti mikil nýlunda. Það voru 3 skátaflokkar starfandi í Mosverjum. Skátaflokkurinn Ernir var í Reykjahverfi, Gammarnir í Niðursveitinni og Fjólurnar voru í Mosfellsdal.
Félagið hefur í áranna rás verið mismikið starfandi. Oft var mikill kraftur í starfinu og hafa Mosverjar stundum verið meðal stærri skátafélaga á Islandi. Ýmsar ástæður eru fyrir því að félagið hefur verið misjafnlega öflugt en vöntun á öruggu húsnæði fyrir skátaheimili hefur oft staðið starfseminni fyrir þrifum auk þess sem foringjaskortur var félaginu oft fjötur um fót. Nú hafa Mosverjar verið í ágætri sókn í nokkur ár. Það er vegna tilkomu skátaheimilisins við Varmá og einnig hafa Mosverjar nú á að skipa áhugasömum foringjum sem stjórnað hafa starfinu síðast liðin ár.
Stjórn Mosverja, sem er skipuð foreldrum skáta ásamt sveitarforingum félagsins, bera ábyrgð á starfi félagsins. Sá hópur myndar félagsráð Mosverja og hefur verið mjög mikilvægur þáttur starfseminnar.
Markmið Mosverja hefur alltaf verið að standa fyrir litríku og þroskandi starfi. Það hefur tekist með sameiginlegu átaki margra og með góðum stuðningi bæjaryfirvalda og orðið til þess að Skátafélagið Mosverjar er ágætlega statt í dag.
6 ára | Hrefnuskátar
Hrefnuskátar | 6 árafrístundarseli Lágafellsskóla
Hrefnuskátar eru yngsta skátasveitin í Mosverjum. Sveitin starfar innan frístundasels Lágafellsskóla en skátarnir eru í fyrsta bekk. Hópurinn er lítill og með einn foringja sem einnig er starfsmaður frístundaselsins. Þar funda þau einu sinni í viku og fá að kynnast fyrstu skrefum skátastarfs.
Þau vinna skemmtileg verkefni, kynnast útivistinni og hafa gaman saman.
Þau æfa sig í að fylgja leiðbeiningum foringjans og vinna saman með hinum hrefnuskátunum. Þau læra einnig að finna lausnir á einföldum vandamálum og ræða saman um hvernig best er að leysa fjölbreytt verkefnin.
Sveitarforingi:
Hrafnhildur Oddný Sigurgísladóttir
7-9 ára | Drekaskátar
Drekaskátar | 7-9 áramánudaga 16:30 - 17:30
Skátarnir fást við margvísleg viðfangsefni á drekaskátaaldri. Þá einbeita skátarnir sér að mestu leyti að leikjum og skemmtilegum verkefnum sem styrkja ýmsa dýrmæta eiginleika svo sem traust, þolinmæði, samvinnu, samkennd og sjálfsbjargarviðleitni. Á þessum yngstu árum í skátastarfi öðlast skátarnir grunn í allskyns færni sem þau skerpa enn fremur á efri aldursbilum. Þrátt fyrir ungan aldur eru skyndihjálp, útieldun, rötun, náttúruvitund og útivera í ýmsum aðstæðum á meðal þess sem drekaskátar fá að reyna.Drekaskátarnir halda vikulega fundi og fara í tvær dagsferðir yfir veturinn - eina á hvorri önn. Drekaskátamót er svo haldið í júní á hverju ári. Mótið er vanalega haldið á Úlfljótsvatni þar sem drekaskátar af öllu landinu koma saman, reisa tjaldbúð, taka þátt í fjölbreyttri dagskrá og gista eina nótt í tjaldi.
Sveitarforingi: Dagbjört Brynjarsdóttir
dagga(hjá)mosverjar.is
10-12 ára | Fálkaskátar
Fálkaskátar | 10-12 áraþriðjudaga 17:00 - 18:30
ForingjarHrafnhildur Oddný Sigurgísladóttir
hrafnhildur(hjá)mosverjar.is
Unnur Elísa Sigurgísladóttir
Unnur Hróbjartsdóttir
13-15 ára | Dróttskátar
Dróttskátar | 13-15 ára miðvikudaga 19:30 - 21:00
Kristófer Njálsson
Eyvör Stella Guðmundsdóttir
Gunnlaugur Friðjónsson