Dróttskátar | 13-15 ára

miðvikudaga 19:30 - 21:00

Fjölmargir nýir möguleikar bjóðast skátum þegar þau komast á dróttskátaaldur. Þau geta tekið þátt í fjölda viðburða víðsvegar um landið sem þau gátu ekki sótt áður sökum aldurs ásamt því að fá sín fyrstu tækifæri til að ferðast á skátamót erlendis.

Dróttskátar eru í virkara samráði við sína foringja um eigið starf og hljóta þannig aukið frelsi til að hrinda eigin hugmyndum í framkvæmd. Samhliða því vex ábyrgð þeirra á eigin starfi og á starfinu í skátafélaginu. Margir skátar taka sín fyrstu skref í foringjastörfum á þessum aldri og stendur því  til boða að taka þátt í ýmsum námskeiðum tengd foringjastörfum.

Í dróttskátastarfinu fá ungmenni tækifæri til að ferðast og spreyta sig á krefjandi verkefnum í hópi jafnaldra sem að standa þétt saman í starfinu. Þau kynnast ekki bara öðrum og ýmislegu um samskipti og samstarf. Þau kynnast líka  sjálfum sér, eigin verðugleikum og getu í fjölbreyttu og skemmtilegu starfi.

Sveitarforingjar:
Andrea Dagbjört Vatnsdal Pálsd.
drea(hjá)mosverjar.is
Heiðdís Erla Jónsdóttir
Bjarki Rafn Andrésson

Skátafélagið Mosverjar
︎  Álafossvegi 18 |  270 Mosfellsbæ
︎  mosverjar@mosverjar.is
Skátafélagið Mosverjar
︎  Álafossvegi 18 | 270 Mosfellsbæ
︎  mosverjar(hjá)mosverjar.is